Vinnslurýmið er 104m2 að stærð og er leigð út.
Aðstaðan er vel til þess fallin að framleiða og þróa vörur. Allur búnaður er hannaður með það í huga að stuðla að góðu og heilsusamlegu vinnuumhverfi fyrir framleiðendur. Hægt er að stjórna hitastigi í vinnslurýminu sem kemur sér vel þegar unnið er með viðkvæmt hráefni.
Búnaður og borð eru á hjólum þannig að auðvelt er að setja upp framleiðslulínur og einnig er heimilt að koma með eigin búnað. Hlífðarfatnaður er á staðnum, sloppar, skór, stígvél, svuntur, hanskar og hárnet.
Hér má sjá samantekt á búnaði okkar: